Skattborgarar greiða hálfa milljón fyrir hvern íbúa Álftaness BBI skrifar 27. september 2012 09:48 Álftanes. Mynd/Vilhelm
Skattgreiðendur munu bera 1.214 milljóna króna kostnað af sameiningu Garðabæjar og Álftaness í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Kostnaðurinn fer í fjárhagslega endurskipulagningu Álftaness en stór hluti framlaganna er háður því að sameiningin fari fram. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag þar sem vitnað er í greinargerð um fyrirhugaða sameiningu sveitarfélaganna. Þar segir að aukaframlag Jöfnunarsjóðsins til Álftaness muni nema 449 milljónum á árunum 2011-2013, framlag vegna skuldaerfiðleika verði 285 milljónir króna í ár, skuldajöfnunarframlag muni nema 450 milljónum á árunum 2012-2015 og framlög til endurskipulagningar á stjórnsýslu og þjónustu verði 30 milljónir. Við það leggjast svo 9 milljónir til undirbúnings sameiningarinnar. Stór hluti þessara framlaga er háður því að Álftanes og Garðabær verði sameinuð og því má segja að fjárhagsleg endurskipulagning Álftaness standi og falli með sameiningu sveitarfélaganna, en íbúar sveitafélaganna munu kjósa um hana þann 20. október. Á Álftanesi búa um 2.400 manns og því mun kostnaður Jöfnunarsjóðsins nema um hálfri milljón króna á hvern íbúa. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er að mestu leyti kostaður af íslenska ríkinu. Miðað við ársreikning sjóðsins árið 2010 koma tveir þriðju hlutar fjársins frá ríkinu og einn þriðji frá sveitarfélögum.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira