Segir niðurstöðu FME vonbrigði og boðar til blaðmannafundar 30. nóvember 2012 14:37 Víglundur Þorsteinsson. „
Ég lýsi yfir vonbrigðum mínum með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins (FME) á athugun sem eftirlitið gerði í kjölfar kæru minnar á meðferð skuldamála BM VALLÁ hf. hjá Arionbanka" segir Víglundur Þorsteinsson í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla fyrir skömmu vegna niðurstöðu FME um að engin aftökulisti væri til. Fjármálaeftilitið gerir að auki ekki athugasemdir við það hvernig Arion banki háttaði tilraunum við endurskipulagningu og síðar gjaldþrot B.M. Vallá hf, sem Víglundur var forstjóri hjá. Svo segir í yfirlýsingu Víglundar: „Miðað við tilkynningu FME er ljóst að hin svokallaða athugun eftirlitsins hefur verið yfirborðskennd og fjarri þeirri rannsókn sem stofnuninni bar að framkvæma. Þessi vinnubrögð hefðu ekki átt að koma mér á óvart því þau er í fullu samræmi við vinnulag FME á undanförnum árum, sem hefur fremur snúist um að gæta hagsmuna fjármálafyrirtækjanna en viðskiptavina þeirra." Víglundur hélt mikinn blaðmannafund þar sem hann fór yfir ásakanir sínar gagnvart Arion banka á sínum tíma. Þar hélt hann einmitt fram að einhverskonar aftökulisti hefði verið notaður, en þar er átt við lista með fyrirtækjum sem átti að keyra í þrot. Víglundur er þó ekki af baki dottinn, hann hyggst halda annan blaðmannafund, þar sem hann hyggst birta áður óbirt gögn í málinu. Eða eins og segir í tilkynningunni: „Í næstu viku mun ég boða til blaðamannafundar og sýna þar áður óbirt gögn, máli mínu til frekari stuðnings. Tilkynning um þann fund verður send út þriðjudaginn 4. desember næstkomandi."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira