Saga Capital í slitameðferð 6. júní 2012 12:15 Saga Capital hefur starfað frá árinu 2007. Aðalmaðurinn á bak við stofnun hans var Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem var lengi vel stærsti hluthafi bankans og forstjóri hans. Þorvaldur Lúðvík hætti störfum hjá Sögu í febrúar 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Saga Capital hf., sem lengi vel var fjárfestingabanki, hefur verið tekið til slitameðferðar og félaginu skipuð slitastjórn. Þetta gerist í kjölfar þess að Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði að krafa Fjármálaeftirlitsins (FME) um að félagið yrði tekið til slitameðferðar væri réttmæt. Kröfulýsingarfrestur er til 24. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í innköllun sem birtist í Lögbirtingarblaðinu á mánudag. Í slitastjórn voru skipaðir Ástráður Haraldsson, Arnar Sigfússon og Sigrún Guðmundsdóttir. FME afturkallaði starfsleyfi Sögu sem fjárfestingabanka í október 2011 þar sem hann fullnægði ekki ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki um eigið fé. Í kjölfarið var nafni hans breytt aftur í Sögu Capital og félaginu bannað að kalla sig banka. Forsvarsmenn Sögu reyndu að fá ákvörðunina ógilta en Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti hana í mars síðastliðnum. Í kjölfarið höfðaði FME mál og gerði kröfu um að Sögu yrði slitið. Saga Capital tapaði samtals 8,3 milljörðum króna á árunum 2008-2010. Seðlabanki Íslands átti óbeinan tíu prósenta hlut í félaginu sem nú er tapaður. Forsaga þess að bankinn eignaðist þann hlut er sú að ríkissjóður veitti Sögu 19,6 milljarða króna lán í mars 2009 á tveggja prósenta vöxtum, sem var langt undir þáverandi ávöxtunarkröfu sem var um tólf prósent. Saga núvirti lánið og bjó þar með til nægilega mikla eign í bókhaldi sínu til að sýna jákvætt eigið fé. Þetta lán er tapað að langmestu leyti. -þsj
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira