Keldan kaupir Vaktarann af CLARA ehf. 6. júní 2012 10:03 Friðrik Guðjónsson, framkvæmdastjóri Keldunnar.
Keldan ehf., sem á og rekur vefinn Keldan.is ásamt Dagatali Viðskiptalífsins hefur keypt Vaktarann af CLARA ehf. Vaktarinn er kerfi sem býður viðskiptavinum upp á þann möguleika að fylgjast sjálfvirkt með þjóðfélagsumræðunni. Auðvelt er að gera leitir og velja úr það sem mestu máli skiptir í umræðunni fyrir hvern og einn, hvort sem það er umræða um viðkomandi aðila, samkeppnisaðila fyrirtækja eða tiltekið málefni.Vaktarinn hefur skipað sér sess á íslenskum markaði og nú þegar nýta yfir 100 aðilar þjónustu hans á hverjum degi og geta á auðveldan máta fylgst með þeim 6 þúsund fréttum, greinum og athugasemdum sem birtast daglega á netinu um fyrirtæki, vörumerki og einstaklinga á Íslandi, að því er segir í tilkynningu frá Keldunni vegna kaupanna.Keldan var opnuð á haustdögum 2009 og er einn mest sótti upplýsinga- og viðskiptavefur um íslenskt fjármála- og viðskiptalíf, að því er segir í tilkynningu. Auk opins aðgangs að helstu fjármála-og viðskiptaupplýsingum stuðlar Keldan að gagnsæi með því að veita aðgang að öllum helstu skrám sem reknar eru af opinberum aðilum á Íslandi, s.s. hlutafélagskrá og ársreikningaskrá. Þá rekur Keldan Dagatal Viðskiptalífsins og hefur með höndum þjónustu vegna Innlánamarkaðar H.F. Verðbréfa. CLARA sérhæfir sig í umræðugreiningu og hefur verið fjármagnað af innlendum sem erlendum fjárfestum. Undanfarið hefur félagið haslað sér völl erlendis sem leiðandi afl í greiningu á samfélögum tölvuleikja og gert samninga við viðskiptavini á borð við PlayStation, Final Fantasy, EVE Online og EverQuest. Salan á Vaktaranum er því liður í áherslubreytingu innan félagsins en Vaktarinn mun, með þjónustusamningi aðila, halda áfram að njóta góðs af framúrskarandi hugbúnaði sem þróaður hefur verið af CLARA. Friðrik Guðjónsson, framkvæmdastjóri Keldunnar, segir í tilkynningu kaupin styrkja þjónustu Keldunnar. „Með kaupum á Vaktaranum styður Keldan við markmið sín um upplýsingar og gagnsæi og eykur framboð á þjónustu til viðskiptavina sinna. Nú geta fyrirtæki jafnt sem einstaklingar fylgst betur með því sem skiptir þá máli, en aukið gagnsæi og aðgangur að upplýsingum er til þess fallin að stuðla að vandaðri ákvarðanatöku í viðskiptum." Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, forstjóri CLARA, segist var stoltur af Vaktaranum. „Við erum ótrúlega stoltir af Vaktaranum, höfum lagt mikla vinnu í að þróa tæknina sem þar liggur á bak við og notið mjög góðs af endurgjöf frá íslenskum notendum okkar. Við getum ekki hugsað okkur betri kaupanda en Kelduna til þess að efla fjölmiðlavöktun og upplýsingamiðlun á Íslandi.
Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira