Sótti áður um starf hjá Norðurorku - fékk ekki vegna glæparannsóknar 6. janúar 2012 15:02 Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson. „
Þessi maður kom einnig til greina þegar hann sótti um starf forstjóra hjá Norðurorku í fyrra. Þá var ákveðið að hann yrði ekki ráðinn þar sem hann var álitinn sakborningur af sérstökum saksóknara," segir Edward Huijbens, varabæjarfulltrúi VG á Akureyri og stjórnarmaður Norðurorku. Hann gagnrýnir ráðningu Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar sem framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE), en hann falaðist eftir forstjórastöðu hjá Norðurorku, sem tilheyrir Akureyrarbæ, á síðasta ári. Tilkynnt var um ráðningu Þorvalds Lúðvíks á mánudaginn síðasta. Í tilkynningu á vef AEF segir orðrétt: „Vegna fyrri starfa sinna hjá Saga Fjárfestingarbanka og sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi til ársins 2006 hefur Þorvaldur Lúðvík aðstoðað Sérstakan Saksóknara í rannsóknum embættisins á málefnum Glitnis og Kaupþings. Stjórn AFE hefur kynnt sér þau mál og þykir ekki ástæða til að efast um hæfi hans vegna þeirra rannsókna." Fram kemur í hádegisfréttum RÚV að stjórnin hefði aldrei kannað sjálf hvort það væri rétt sem Þorvaldur sagði, það er að segja, hvort hann væri að aðstoða við rannsókn málsins, eða hvort hann hefði stöðu grunaðs manns. Málin sem eru til rannsóknar tengjast annars vegar sölu Saga Capital, þar sem Þorvaldur var forstjóri, á skuldabréfi fyrirtækisins Stíms, en Glitnir hafði milligöngu um söluna. Hitt snýst um meint brot í Kaupþingi á árunum 2007 og 2008, en Þorvaldur lét af störfum í Kaupþingi árið 2006. Edward segir í samtali við Vísi að Geir Kristinn Aðalsteinsson, formaður stjórnar AEF, hafi verið ljóst að Þorvaldur hafi verið grunaður maður, enda sat hann í stjórn Norðurorku þegar til stóð að ráða hann í vinnu. Þá var tekin sú ákvörðun að slíkt væri ekki boðlegt vegna stöðu Þorvaldar hjá sérstökum saksóknara. „Svo verður líka trúnaðarbrestur á mettíma þegar Þorvaldur heldur því fram að hann hafi eingöngu aðstoðað við rannsóknina, en væri ekki grunaður maður," segir Edward og bætir við að réttast væri að nýráðinn framkvæmdastjórinn segði upp vegna trúnaðarbrestsins. „Svo er alveg klárt mál að Geir Kristinn þarf að íhuga sína stöðu vandlega í ljósi aðstæðna," segir Edward. Ekki náðist í Geir Kristinn við gerð fréttarinnar.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira