Verulega dregur úr afgangi á vöruskiptum 29. júní 2012 09:05
Verulega hefur dregið úr afgangi á vöruskiptum það sem af er árinu miðað við sama tímabil í fyrra. Fyrstu fimm mánuði árins voru fluttar út vörur fyrir 261,7 milljarða króna en inn fyrir 234,8 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 26,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 39,6 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 12,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 55,4 milljarða króna og inn fyrir 56,5 milljarða króna. Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 1,1 milljarð króna. Í maí 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 5,9 milljarða króna á sama gengi. Fyrstu fimm mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 11,9 milljörðum eða 4,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,2% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,1% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski. Fyrstu fimm mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 24,6 milljörðum eða 11,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrsgerð Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrsgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira