Ævintýri framundan í Þingeyjarsýslum Kristján Már Unnarsson skrifar 29. júní 2012 20:35
Ævintýri er að hefjast, segir bæjarstjóri Norðurþings, sem áætlar að tólf- til fimmtánhundruð manns þurfi við uppbyggingu í Þingeyjarsýslum á næstu árum og að áttahundruð varanleg störf skapist í héraðinu. Tíu milljarða króna framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefjast líklega þegar í haust. Á næsta ári gæti hafist fimmtíu milljarða uppbygging tveggja kísilvera á Bakka, PCC og Thorsils, önnur eins fjárfesting í virkjunum í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum, ásamt fimm milljarða fjárfestingu Landsnet í línukerfi, og loks stefnir í tuttugu milljarða uppbyggingu Nubos á Grímsstöðum. Í Þingeyjarsýslum sjá menn fram á fjölda starfa. „1200-1500 manns sem koma þarna á uppbyggingartímanum. Og þegar þessu verður lokið erum við að vonast til að búið verði að skapa í kring um 800 varanleg störf í sýslunni," segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings. Ekkert er hins vegar ákveðið og raforkusamningar eru með fyrirvörum. „Ég hef góða trú á þessu. Við erum komnir ansi langt. Þannig ég er nokkuð bjartur á að þetta fari að ganga upp eftir allt erfiðið undanfarin ár. Ævintýrið er að fara í gang. Það er bara þannig að þegar menn vilja hafa áhrif á svæði sem að hafa verið í vörn í mörg ár þá krefst það bara þrautseigju, eljusemi og það að gefast ekki upp. Og ég er sannfærður um það að þessi barátta sem við höfum háð mun skila samfélaginu góðu," segir Bergur.Þetta verða náttúrlega alger umskipti fyrir þetta samfélag, segir fréttamaður. „Svo sannarlega, enda þurfum við á því að halda," svarar Bergur.
Mest lesið Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira