Fasteignaverð hækkaði mest á Íslandi í fyrra af Evrópuþjóðum 29. febrúar 2012 10:21
Af 23 Evrópuþjóðum hækkaði verð á fasteignum mest á Íslandi á síðasta ári. Nafnverðshækkunin er meiri hér á landi en í Noregi þar sem mikil fasteignabóla er í gangi. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail um málið sem byggir á úttekt frá Hinni konunglegu stofnun löggildra eftirlitsmanna. Þar segir að fasteignaverð hafi hækkað mest eða um 10% á Íslandi á síðasta ári. Næst á eftir kemur Noregur með tæplega 10% hækkun og í þriðja sæti er Frakkland með um 7% hækkun. Í þessu sambandi má nefna að Norðmenn hafa töluverðar áhyggjur af þeirri fasteignabólu sem geisað hefur í Noregi allt síðasta ár. Fasteignir á Írlandi hröpuðu hinsvegar í verði á síðasta ári og nam nafnverðslækkunin þar 17%. Næst á eftir kemur Spánn þar sem fasteignaverð lækkaði um tæp 10% og í þriðja sætinu er Kýpur með um 8% lækkun. Fram kemur að það komi verulega á óvart að Ísland skuli vera það land þar sem fasteignaverð hefur hækkað mest á liðnu ári, sérstaklega þegar haft er í huga að fyrir rúmum þremur árum hrundi fjármálakerfi landsins eins og það lagði sig. Sagt er að hækkun fasteignaverðsins á Íslandi sé enn eitt merki þess hve vel landið hefur náð sér á strik eftir hrunið.
Mest lesið Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira