Viðskipti innlent

Forstjóri Yahoo laug til um prófgráðu sína

Scott Thompson.
Scott Thompson.
Forstjóri netrisans Yahoo, sem heldur úti einni af stærstu leitarvélum á Netin, hefur verið látinn taka pokann sinn. Ástæða uppsagnarinnar er sögð vera sú að stjórinn, Scott Thompson, laug til um námsferil sinn og sagðist vera með próf í tölvunarfræði sem var alls ekki raunin.

Ásakanir þessa efnis komu fram fyrir viku og í gær hittist stjórn Yahoo á neyðarfundi þar sem ákveðið var að láta Thompson fara. Hann sagði á ferilskrá sinni að hann hefði lært tölvunarfræði við Stonehill College nálægt Boston árið 1979. Það getur hinsvegar ekki verið, því tölvunarfræði var ekki kennd við skólann á þeim tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×