Alcoa dregur saman seglin - samt ekki á Íslandi 9. janúar 2012 10:17 Ál.
Í ljósi aðstæðna á álmörkuðum heimsins og lækkandi álverðs hefur Alcoa tilkynnt að dregið verði úr heildarframleiðslu áls um tólf prósent, eða um sem nemur 531 þúsund tonni á ári, samkvæmt frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Markmiðið er að draga úr kostnaði og styrkja samkeppnishæfni Alcoa á álmörkuðum heimsins, en álverð hefur fallið um 27 prósent frá hæsta verði 2011. Í þessu skyni verður starfsemi m.a. hætt í verksmiðju Alcoa í Tennessee, en þar var byrjað að draga úr framleiðslu árið 2009, og í verksmiðjunni í Rockdale í Texas verður framleiðslu hætt í tveimur kerlínum af sex. Heildarframleiðslugeta Alcoa er nú um 4,5 milljónir tonna á ári. Klaus Kleinfeld, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa, segir að aðgerðirnar séu vissulega sársaukafullar en nauðsynlegar til að unnt sé að vernda störf á öðrum starfsstöðvum Alcoa í heiminum. Þar sem aðgerðirnar bitna harðast á nærsamfélaginu mun Alcoa taka upp nána samvinnu við starfsfólk, verkalýðsfélög og sveitarfélög í því skyni að finna leiðir til að hefja aðra starfsemi í þeim verksmiðjum sem hefur verið lokað. Hjá Fjarðaáli verður, eins og hjá öðrum álverum Alcoa, gætt enn strangara kostnaðaraðhalds á þessu ári. Janne Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls segir að þar sem álverið sé nýjasta og eitt hagkvæmasta álver fyrirtækisins telji hún hverfandi líkur á að dregið verði úr framleiðslu þess
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Sjá meira