Byggðamál að heimila sölu á áfengi í matvöruverslunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. janúar 2012 21:37
Ef sala á áfengi yrði heimiluð í matvöruverslunum myndi það styrkja rekstur slíkra verslana á fámennum stöðum. Þetta segir Finnur Árnason, forstjóri Haga sem á og rekur verslanir á borð við Hagkaup og Bónus. „Það er náttúrlega oft á brattan að sækja með verslunarrekstur úti á landsbyggðinni og alveg ljóst að því fleiri stoðir sem verslunin hefur því sterkari getur hún verið og það er erfiðara að halda úti dagvöruverslun á fámennum stöðum," segir Finnur. Hann segir að áfengissala í verslunum myndi kannski styrkja og ýta undir rekstrargrundvöll á slíkum stöðum. Finnur sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í dag að salan yrði að vera samkvæmt öllum þeim skilyrðum sem nauðsynlegar eru til að tryggja rétta umgengni við þessa vöru. Hann bendir á að áfengi sé selt í verslunum víðast í kringum okkur. „Við förum til Bandaríkjanna eða Bretlands, eða þess vegna Danmerkur og þar er léttvín og bjór fáanlegt," segir Finnur. Finnur segir að það sé gríðarlegt óhagræði í því að selja vöruna í sérstökum verslunum. „Ríkissjóður getur fengið allar þær tekjur sem hann vill með því að stýra gjaldtöku. Hann getur losnað við kostnaðinn við rekstur búðanna. Hann er að selja tóbak og nær þar tekjum sem hann vill en hann sér ekki um rekstur tóbaksbúða og ég sé engan mun á þessum vörum," segir Finnur.
Mest lesið Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Neytendur Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Hægt að spara háar fjárhæðir í jólainnkaupum Neytendur Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira