Innlent

Heimaljósastúdíó fyrir fyrsta sætið

Þessi fallega mynd prýddi forsíðu Fréttablaðsins en hún var valin besta myndin í ljósmyndasamkeppni blaðsins í desember 2010.
Þessi fallega mynd prýddi forsíðu Fréttablaðsins en hún var valin besta myndin í ljósmyndasamkeppni blaðsins í desember 2010.
Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins lýkur á hádegi í dag en þemað er „Páskastemning“. Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins á laugardaginn kemur.

Verðlaun fyrir fyrsta sætið er heimaljósastúdíó frá Nýherja. Í því eru tveir 150W ljósastandar, regnhlíf og DVD-kennsludiskur. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru ferðir í Borgarleikhúsið fyrir tvo. Hver þátttakandi skal senda inn eina mynd, sendi hann fleiri gildir fyrsta myndin. Hún skal hafa verið tekin nú í vetur.

Óheimilt er að senda inn eða eigna sér ljósmyndir sem eru teknar af öðrum en sendanda. Áskilinn er réttur til að hafna hvaða mynd sem er og til að breyta fyrirsögn og myndatexta í birtingu, jafnframt er áskilinn réttur til birtingar myndar á forsíðu blaðsins. Innsendar myndir eru eign höfunda, en Fréttablaðinu og Vísi.is er heimilt að birta þær í tengslum við keppnina og í kjölfar hennar svo fremi sem höfundarnafn sé tiltekið.

Samkeppnin hófst sem fyrr segir á miðvikudaginn en stendur til klukkan tólf á hádegi í dag. Tekið er við myndum á netfanginu ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is og skulu þær vera í nægilegri upplausn til að birta í blaðinu. Myndinni þarf að fylgja nafn höfundar og upplýsingar um heimilisfang, netfang og símanúmer. - kh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×