Háskólunum verði fækkað úr sjö í fjóra 3. apríl 2012 05:30 Hægt væri að sameina HR og Háskólann á Bifröst, samkvæmt skýrslu Vísinda- og tækniráðs. Fréttablaðið/anton
Fjárveitingar til háskóla eru mun minni hér en annars staðar. Veikleikar háskólastigsins felast í of mörgum og fámennum skólum. Hægt væri að fækka skólunum án mikillar röskunar, eða breyta rekstrarformi til að auka samstarf. Veikleikar háskólastigsins á Íslandi felast í of mörgum og fámennum háskólum og mögulegt er að fækka þeim úr sjö í fjóra án mikillar röskunar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að skýrslu sem Vísinda- og tækniráð hefur sett á heimasíðu sína. Skýrslan fjallar um einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu í heild, sem unnið hefur verið að undanfarið ár. Vísinda- og tækniráð starfar undir stjórn forsætisráðherra og mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi. „Þrenns konar rekstrarform, opinberir háskólar, sjálfseignarstofnanir og hlutafélag, hindrar samstarf milli háskóla,“ segir í skýrslunni. Tvær tillögur eru lagðar fram til breytinga á háskólunum. Annars vegar er lagt til að skólunum verði fækkað í fjóra úr sjö. Tveir yrðu opinberir háskólar og tveir sjálfstæðir. Þannig myndu Háskóli Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands sameinast, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum sömuleiðis. Þá myndu Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst verða sameinaðir, en Listaháskóli Íslands yrði áfram eins og er. Þessi skipan myndi festa háskólastarf í sessi á landsbyggðinni að mati skýrsluhöfunda, auk þess sem leiðin er auðveld og myndi valda lítilli röskun. Hins vegar yrðu kraftar áfram töluvert dreifðir og rekstrarformin áfram ólík. Hinn valkosturinn er að halda fjölda háskóla óbreyttum en breyta rekstrarformi þeirra svo þeir yrðu allir reknir sem sjálfseignarstofnanir. Með því að fara þá leið yrði ábyrgðin á verkaskiptingu og sameiningu sett á sjálfa háskólana. „Líklegur ávinningur er að enn frekari breytingar á verkaskiptingu og enn skjótvirkari sameiningar næðust fram með þessari ákvörðun,“ segir í skýrslunni. Fjárveitingar til háskóla hér á landi eru mun minni en í samanburðarlöndum, hvort heldur sem litið er til ríkja innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar eða á Norðurlöndunum. „Frá 2008 hafa fjárveitingar til háskóla dregist saman að raungildi um ríflega 13 prósent án þess að gripið hafi verið til heildstæðra hagræðingaraðgerða.“ Á sama tíma hefur nemendafjöldinn aukist og því er krafa á háskólana að auka þjónustu fyrir minna fé. „Að öðru óbreyttu ógnar þessi óheillaþróun rannsóknastarfsemi innan háskólanna.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira