Norðlenska greiðir arð í fyrsta sinn 3. apríl 2012 08:55
Á aðalfundi Norðlenska í gær var samþykkt að greiða eigandanum Búsæld ehf., félagi 540 bænda, arð að upphæð 66 milljónum króna. Þetta er í fyrsta skipti sem eigendum Norðlenska er greiddur arður af starfseminni. Í tilkynningu segir að rekstur Norðlenska gekk vel í fyrra. Ársvelta félagsins var rúmlega 4,5 milljarðar króna og jókst um rúm 10% á milli ára. Hagnaður ársins var 291 milljón króna og eigið fé Norðlenska er nú 386 milljónir króna. „Hagnaður ársins er m.a. til kominn vegna sterkrar stöðu á innanlandsmarkaði, en vörur og vörumerki Norðlenska njóta mjög mikilla vinsælda hjá neytendum. Einnig vegna þess að verð á erlendum mörkuðum var hærra en áður og sala úr landi meiri en hafði verið. Lækkandi vaxtastig í landinu skipti líka töluverðu máli sem og aukin hagræðing í rekstri. Markvisst hefur verið unnið að því að gæta aðhalds, og segja má að vinna síðustu ára við hagræðingu hafi skilað sér að fullu árið 2011. Fyrirtækið er nú í góðri stöðu," segir í tilkynningunni. Að sögn Sigmundar Ófeigssonar, framkvæmdastjóra Norðlenska, var reksturinn reyndar fremur erfiður framan af ári, vegna ástands á innlandsmarkaði. Á sama tíma fékkst nokkuð gott verð fyrir kjöt erlendis, það lækkaði stöðugt er á árið leið en þá styrktist innlandsmarkaðurinn mjög og Norðlenska jók markaðshlutdeild sína. Markaðir fyrir gærur og aukaafurðir voru mjög góðir á árinu, fyrirtækið hefur lagt aukna áherslu á að fullnýta sláturgripi, aukaafurðir eru allar fluttar út og skiluðu þau viðskipti góðum hagnaði.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira