Hagnaður VÍS rúmlega 400 milljónir í fyrra 3. apríl 2012 09:58
Hagnaður af rekstri Vátryggingafélags Íslands (VÍS) nam 408 milljónum króna eftir skatta í fyrra, sem er tvöfalt meiri hagnaður en árið 2010 þegar hagnaður af rekstri félagsins eftir skatta nam liðlega 204 milljónum króna. Í tilkynningu segir að fjárfestingastarfsemin skilaði 524 milljóna króna hagnaði fyrir skatta árið 2011 en árið áður var tap af fjárfestingastarfsemi 506 milljónir. Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta á árinu 2011 var 95 milljónir króna en árið 2010 var hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 819 milljónir króna. Vátryggingaskuld VÍS nam 24.792 milljónum króna í árslok. Þar af var tjónaskuld 19.455 milljónir króna. Eignir á móti vátryggingaskuld eru mjög traustar enda að langstærstum hluta í ríkistryggðum skuldabréfum. Fjárhagslegur styrkur VÍS er sem fyrr traustur og nemur eigið fé félagsins 11,6 milljörðum króna í lok ársins 2011 og eiginfjárhlutfall rúmum 30%. Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS segir afkomu ársins undir væntingum. „Félagið tekur meðal annars þátt í alþjóðlegum endurtryggingum á sviði náttúruhamfara og var árið 2011 erfitt á þeim markaði með stórum jarðskjálftum og flóðum víða um heim," segir Sigrún Ragna í tilkynningunni. "Hér heima var einnig nokkuð um stór tjón, í brunatryggingum og sjótryggingum sem settu strik í vátryggingarekstur félagsins. Rekstur lögboðinna ökutækjatrygginga var þungur á árinu líkt og á árinu 2010. Það eru spennandi tímar framundan og mikil tækifæri til að gera öflugt félag enn betra. Í því sambandi má nefna að nú í mars skrifaði VÍS undir samning við móðurfélag sitt, Klakka hf., um kaup á systurfélaginu, Líftryggingafélagi Íslands (Lífís). Á árinu 2012 mun Lífís því verða hluti af samstæðu VÍS og styrkja starfsemi og þjónustu félaganna enn frekar."
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira