Hundurinn hafði áður drepið 3. apríl 2012 18:37
Eigandi læðunnar kærði í gær eiganda hundsins Birnu til lögreglu en þessi sama tík réðist á og drap kött í Dofraborgum í Grafarvogi fyrir um árið. Það atvik var einnig kært til lögreglu en endaði með dómssátt. Í samtali við fréttastofu í dag sagði nágranni, sem varð vitni að þeirri árás, hundana hafa ógnað bæði eiganda kattarins og þeim sem komu honum til hjálpar. Tíkin Birna býr hjá fjölskyldu í Grafarvogi en hún er ekki eini Husky-hundurinn á heimilinu því þar eru fimm slíkir hundar til viðbótar auk kattar. Á sunnudaginn slapp Birna og annar hundur út fyrir slysni. Í skýrslu lögreglunnar kemur fram að hundarnir tveir hafi farið hálfir ofan í barnavagn í nágrenninu en konan sem var úti að labba með vanginn hefur þó staðfest að það eigi ekki við rök að styðjast. „Þetta er úti hött að heyra þetta,“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir, dóttir skráðs eiganda tíkarinnar Birnu. „Þetta eru rosalega góðir hundar. En er þessi tegund hættulegri en önnur hundategund? Alls ekki, þetta eru bara hundar - ekki úlfar eins og sumir halda." „Þeir eru alltaf inni - þeir komast ekki í burtu - nema í þetta eina sinn. Við erum núna komin með lás á hliðið sem opnaðist og þetta er ekki að fara að gerast aftur og við vonumst til þess að Hundaeftirlitið láti ekki lóga tíkinni því hún er alveg rosalega góð,“ sagði Ásdís. Hundaeftirlit Reykjavíkur krefst þess að hundurinn fari í skapgerðarmat en ekki hefur verið tekin ákvörðun um aflífun. Mikið hefur verið rætt um málið á netinu og margir farið misljótum orðum um hundana. „Æi þetta er rosalega harkalegt hvernig þeir tala um þetta," sagði Ásdís klökk.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira