Vangoldnir skattar upp á 12 milljarða 6. september 2012 03:30 Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
Ríkisskattstjóri hækkaði í fyrra skatta um tæpan milljarð króna vegna 21 máls frá skattrannsóknarstjóra. Það sem af er þessu ári hefur ríkisskattstjóri hækkað skatta um 674 milljónir króna vegna mála frá skattrannsóknarstjóra. Gjaldabreytingar á þessu ári voru vegna 43 aðila. Hluti þeirra mála er skattaskjólsmál. „Heildarskattahækkanirnar vegna aðgerða ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra í fyrra og það sem af er þessu ári eru 11,8 milljarðar króna. Lagfæringar og leiðréttingar eru ekki inni í þessari upphæð. Eftirlitsmál eru hins vegar í þessari upphæð en fjöldi þeirra var í fyrra 491,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Kerfisbundið undanskot á fjármagnstekjuskatti er mest áberandi í svokölluðum skattaskjólsmálum, að sögn Skúla. „Það er óhætt að segja að fjármagnstekjuskattur sé sá skattur sem er einna drýgstur í þessu. Menn hafa ekki staðið skil á honum. Þegar ráðstafanir eru gerðar í gegnum skattaskjól er oftast verið að fela söluhagnað. Fjármagnstekjurnar eru vantaldar í gegnum aflandsfélög.“ Árið 2009 skoðaði ríkisskattstjóri notkun á kreditkortum sem gefin voru út erlendis og skuldfærð þar en notuð til úttektar hér á landi. „Við báðum um upplýsingar um notkun yfir ákveðinni upphæð. Þetta var aðferð til að finna stærri undanskot. Út úr þessu komu 60 aðilar sem þannig háttaði til um. Við vissum ekki fyrir fram hverjir þeir væru. Talið var að um kerfisbundið undanskot frá skatti væri að ræða í helmingi tilvikanna og voru þau mál öll send skattrannsóknarstjóra. Rannsókn á þeim er nú að mestu lokið og er búið að leggja á skatt í langflestum þeirra,“ segir ríkisskattstjóri. Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri greindi frá því í viðtali við Fréttablaðið á þriðjudag að hluti skattaskjólsmálanna hefði komið upp á yfirborðið í kjölfar kreditkortamálsins. Í ljós hefðu komið tengsl á milli sumra þeirra. „Ýmis gögn og upplýsingar varðandi sum málanna hafa leitt okkur inn í önnur.“ibs@frettabladid.is
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent