Landsliðsþjálfarinn mætir á haustráðstefnu Advania JHH skrifar 6. september 2012 10:21 Lars Lagerbäck fer yfir leikskipulagið í leiknum á móti Norðmönnum.
Von er á liðlega 900 gestum á haustráðstefnu Advania sem verður haldin á Hilton-hótelinu í Reykjavík á morgun. Um er að ræða stærsta stefnumót upplýsingatækni og atvinnulífs ár hvert. Að þessu sinni verða um 40 fyrirlestrar í boði á 4 mismunandi þemalínum sparnaðar, hagnýtingar, fróðleiks og virkni. Liðlega helmingur fyrirlesara kemur erlendis, meðal annars Dan Lyons, tækniritstjóri Newsweek, og Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Hátt í eitt þúsund ráðstefnugestir eru væntanlegir. Þess má geta að Advania fór sumpartinn sérstakar leiðir við kynningu á ráðstefnunni og setti meðal annars saman vídeó, þar sem ýmsir þekktir Íslendingar segja frá því hvernig líf þeirra hefur verið snortið af ráðstefnunni gegnum árin. Lykilræður ráðstefnunnar verða þrjár. Dan Lyons, tækniritstjóri Newsweek, fjallar um byltingu snjallsíma og samfélagsmiðla og áhrif hennar á atvinnulífið. Björn Zoëga, forstjóri Landspítala-Háskólasjúkrahúss, segir frá nýja spítalanum í Vatnsmýrinni; þessu tækniundri sem verður hjarta þekkingariðnaðar í landinu. Janne Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls, greinir frá því hvernig álverið á Reyðarfirði beitir upplýsingatækni á markvissan hátt til að skapa þekkingarver í fremstu röð. Þennan sama dag klukkan 18:45 verður landsleikur Íslands og Noregs í knattspyrnu. Af því tilefni hefur Advania ákveðið að bjóða öllum ráðstefnugestum á landsleikinn. Í tengslum við þá uppákomu hefur landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck bæst við þann góða hóp, sem treður upp á ráðstefnunni. Lagerbäck mun mætat á ráðstefnuna í kaffihléi klukkan 14:15 og greina frá byrjunarliði og leikskipulagi íslenska karlalandsliðsins.
Mest lesið Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent