Aflaverðmætið jókst um 7,2% milli ára 19. desember 2012 09:08
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 122,8 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2012 samanborið við 114,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,3 milljarða eða 7,2% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var 71,5 milljarðar og jókst um 5,6% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 67,7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 36,5 milljarðar og jókst um 12,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 9,3 milljörðum og jókst um 10,3% en verðmæti karfaaflans nam 10,3 milljörðum, sem er 7,0% aukning frá fyrstu níu mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,3% milli ára og nam 7,0 milljarði króna í janúar til september 2012. Verðmæti uppsjávarafla nam um 38,0 milljörðum króna í janúar til september 2012, sem er 7,6% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti rúmum 13 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða fyrstu níu mánuði ársins 2011. Einnig var 2,4 milljarða króna aukning í kolmunnaafla, sem nam um 2,7 milljörðum króna árið 2012. Verðmæti makrílafla dróst saman um 19% á milli ára og nam tæpum 14,4 milljörðum króna í janúar til september 2012. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur fyrstu níu mánuði ársins 2012, samanborið við gulldepluafla að verðmæti 261 milljón króna á sama tímabili árið 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 8,6 milljörðum króna, sem er 12,5% aukning frá janúar til september 2011. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 58,3 milljörðum króna og jókst um 17,0% miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,3% milli ára og nam 16,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 42,9 milljörðum í janúar til september og dróst saman um 1,8% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 4,3 milljörðum króna, sem er 16,5% samdráttur frá árinu 2011.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira