Fundað um makrílveiðar á Hótel Sögu 14. febrúar 2012 18:30
Rúmlega fjörutíu fulltrúar Evrópusambandsins, Noregs, Færeyja, Íslands og Rússlands funda næstu þrjá daga um Makrílveiðar á Hótel Sögu. Mikil harka hefur einkennt viðræður um þetta eldfima mál en löndin freista þess að ná samkomulagi um fyrirkomulag veiðanna sem allir geti sætt sig við. Miklir hagsmunir eru í húfi í Makríldeilunni. Á síðasta ári var Makríllinn sú fisktegund sem skilaði næst mestum tekjum inn í íslenskt þjóðarbú úr sjávarútvegi, á eftir þorski. Makríldeilan snýst um hvernig þessum veiðum skuli háttað, þ.e. hversu mikið hver þjóð á að fá að veiða úr heildarstofninum. Mikið ber á milli, samkvæmt heimildum fréttastofu. Fulltrúar Evrópusambandsríkja á fundinum, ekki síst Íra og Skota, hafa talið eðlilegt að hlutur Íslendinga í heildar veiðistofni Makríls sé á milli 5 og 7 prósent, en hluturinn hefur verið 16 til 17 prósent nú. Mikið ber því í milli, og báðir aðilar hafa ekkert gefið eftir til þessa. Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins (ICES) um makrílveiðarnar hljóðaði upp á 646 þúsund á síðasta ári. Þar sem ekkert samkomulag náðist settu ríkin sér einhliða kvóta og var reyndin sú að rúmlega 900 þúsund tonn voru veidd. Hlutdeild Íslands í þeim kvóta var 146,8 þúsund tonn. Markmið viðræðnanna er að tryggja sjálfbærar veiðar. Viðræðunum lýkur á föstudag. Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum, vildi ekkert tjá sig um viðræðurnar í dag þegar eftir því var leitað frekar en fulltrúar Evrópusambandsins.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira