Laun hækkuðu um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi 7. september 2012 09:14
Regluleg laun voru að meðaltali 1,4% hærri á öðrum ársfjórðungi 2012 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 9,2% að meðaltali, hækkunin var 9,3% á almennum vinnumarkaði og 8,9% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 1,9%. Á sama tímabili hækkuðu laun um 0,8% í atvinnugreininni byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Frá fyrra ári hækkuðu laun einnig mest í fjármálaþjónustu eða um 12,6% og minnst í byggingarstarfsemi um 7,0%. Þá hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 3,2% en laun verkafólks hækkuðu að meðaltali um 0,3% á sama tímabili. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu einnig mest frá fyrra ári eða um 14,0% en laun sérfræðinga hækkuðu minnst, um 8,1%. Í vísitölu launa á öðrum ársfjórðungi 2012 gætir áhrifa hækkana sem komu til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi og kveðið var á um í kjarasamningum sem undirritaðir voru á árinu 2011. Í kjarasamningi á milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins var kveðið á um hækkun á kjarasamningsbundnum kauptöxtum um 11.000 krónur og almenna hækkun launataxta um 3,5% þann 1. febrúar 2012. Sambærilegir samningar voru gerðir milli fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna og sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna, en í þeim samningum kom almenn launahækkun um 3,5% til framkvæmda
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira