Viðskipti innlent

Uppbyggingin á Grímsstöðum kosti 16,2 milljarða

Magnús Halldórsson skrifar
Huang Nubo.
Huang Nubo.
Félagið Zhongkun Grímsstaðir ehf., sem er í eigu kínverska fjárfestisins Huang Nubo, hefur lýst yfir áhuga á uppbyggingu ferðamennsku á Grímsstöðum á Fjöllum, en samkvæmt umsókn félagsins til nefndar á vegum stjórnvalda er gert ráð fyrir að kostnaður við uppbyggingu á Grímsstöðum verði um 16,2 milljarðar íslenskra króna á næstu fimm árum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef iðnaðarráðuneytis Steingríms J. Sigfússonar ráðherra.

Í yfirlýsingunni segir enn fremur að ýmsum spurningum sé enn ósvarað er tengist málinu, en eins og greint var frá á Vísi fyrri í dag hafa stjórnvöld skipað starfshóp eða samráðshóp sem skoða mun allar hliðar Nubo-málsins og meta hvað sé best að gera, þegar kemur að áhuga Nubo á því að byggja upp ferðaþjónustu á Grímsstöðum á fjöllum.

„Ýmis álitamál hafa komið upp við vinnslu þessa máls. Mikilvægt er að skoða hver áhrif þessarar fjárfestingar yrðu til framtíðar með hliðsjón af skuldbindingum íslenska ríkisins og sveitarfélaganna. Þá er mikilvægt að tryggja að fjárhag umræddra sveitarfélaga verði ekki stefnt í hættu vegna þessa verkefnis t.d. ef ekkert verður úr fyrirhugaðri uppbyggingu. Eins er ýmsum spurningum ósvarað hvað varðar uppbyggingu innviða í tengslum við þetta verkefni og hver beri ábyrgð á henni. Jörðin er t.d ekki tengd við dreifikerfi raforku og engar upplýsingar liggja fyrir um það hvernig sinna á raforkuþörf á svæðinu. Þá kunna að vakna spurningar hvort ríkið þurfi að niðurgreiða kostnað vegna kyndingar svo dæmi sé tekið. Kröfur geta komið fram um þætti eins og snjómokstur, skóla og heilbrigðisþjónustu ef af fjárfestingunni verður. Jafnframt hafa komið fram hugmyndir um endurbætur á flugvelli. Loks ber að nefna að Grímstaðir ligga við mörk Vatnajökulsþjóðgarðs og í jaðri miðhálendisins og öll áfom um uppbyggingu þar þarf því að skoða í ljósi þess" segir m.a. í yfirlýsingunni sem er að finna vef iðnaðarráðuneytisins.

Sjá má yfirlýsinguna í formi minnisblaðs í heild sinni hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×