ÍLS mun ekki lána fyrir eignum sem kosta meira en 50 milljónir 8. maí 2012 14:54
Íbúðalánasjóði verður óheimilt að veita lán til kaupa á íbúðarhúsnæði þegar hámarksfjárhæð ÍLS-veðbréfa er lægri en 40% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis samkvæmt frumvarpi sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti fyrir á Alþingi fyrr í vikunni. Samkvæmt því mun sjóðurinn ekki veita lán til eigna þar sem fasteignamat er yfir 50 milljónir króna. Með þessu er komið til móts við athugasemdir um að lánveitingar til kaupa á mjög verðmætu húsnæði rúmist ekki innan félagslegra markmiða sjóðsins. Eftirlit með starfsemi Íbúðalánasjóðs verður aukið, skýrari skilyrði sett við lánveitingum til uppbyggingar leiguhúsnæðis og heimildir sjóðsins til lánveitinga vegna kaupa á dýru íbúðarhúsnæði þrengdar samkvæmt frumvarpi til breytinga á lögum um húsnæðismál sem Guðbjartur mælti fyrir á Alþingi í liðinni viku. Með áformuðum breytingum er brugðist við athugasemdum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert við starfsemi Íbúðalánasjóðs. Eftirlitsstofnunin beindi þeim tilmælum til íslenskra stjórnvalda 18. júlí 2011 að gera breytingar á ýmsum þáttum í starfsemi Íbúðalánasjóðs þannig að lánafyrirkomulag sjóðsins samræmdist skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Í tilmælunum kom fram það mat stofnunarinnar að Íbúðalánasjóður njóti ríkisaðstoðar í formi eigendaábyrgðar, vaxtaniðurgreiðslna, undanþágu frá arðsemiskröfu og greiðslu tekjuskatts. Með frumvarpi til breytinga á lögum um húsnæðismál sem velferðarráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi er brugðist við tilmælum Eftirlitsstofnunar EFTA og tryggja að ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð samræmist reglum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið hvað þetta varðar. Helstu breytingar samkvæmt frumvarpinu: Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á starfsemi Íbúðalánasjóðs og eftirliti með starfseminni í samræmi við kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um starfsemi þeirra. Lagt er til að lánveitingar Íbúðalánasjóðs til endurbóta, byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði verði takmarkaðar við almenn lán til einstaklinga. Er þetta gert til samræmis athugasemdum um að lánastarfsemi til fyrirtækja, svo sem byggingaverktaka, samræmist ekki hlutverki Íbúðalánasjóðs. Lagt er til að lögfest verði ákvæði um að almenn lánveiting Íbúðalánasjóðs geti numið allt að 80% af matsverði íbúðar í stað 90% samkvæmt gildandi lögum. Þessi breyting mun að svo stöddu ekki hafa áhrif á lánveitingar sjóðsins þar sem þær miðast nú við 80% samkvæmt reglugerð. Þetta tekur hins vegar fyrir að lánshlutfallið verði aukið með reglugerðarbreytingu heldur mun það krefjast lagabreytingar verði frumvarpið samþykkt. Íbúðalánasjóði verður óheimilt að veita lán til kaupa á íbúðarhúsnæði þegar hámarksfjárhæð ÍLS-veðbréfa er lægri en 40% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis. Samkvæmt því mun sjóðurinn ekki veita lán til eigna þar sem fasteignamat er yfir 50 milljónir króna. Með þessu er komið til móts við athugasemdir um að lánveitingar til kaupa á mjög verðmætu húsnæði rúmist ekki innan félagslegra markmiða sjóðsins. Lánveitingar til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka vegna byggingar eða kaupa á leiguíbúðum verða skilyrtar því að félögin séu ekki rekin í hagnaðarskyni og hafi það sem langtímamarkmið að byggja, eiga og hafa umsjón með rekstri leiguhúsnæðis. Þessar kröfur eru taldar samræmast reglum Eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisaðstoð og geta miðað að því að auka framboð af leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum. Með þessu móti verða lánveitingar vegna leiguíbúða og félagslegar lánveitingar færðar í einn flokk. Loks er samkvæmt frumvarpinu miðað við að eitt af verkefnum Íbúðalánasjóðs verði að eiga og reka leigufélag með íbúðarhúsnæði sem sjóðurinn hefur yfirtekið á nauðungaruppboði en að rekstur þess verði aðskilinn hefðbundnum rekstri sjóðsins.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira