Spáir óbreyttri verðbólgu í desember 18. desember 2012 06:18
Greiningardeild Arion banka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan mælast óbreytt í 4,5% í desember. Bráðabirgðaspá greiningarinnar fyrir næstu mánuði gerir ráð fyrir verðhjöðnun í janúar en síðan hækkun vísitölunnar í febrúar og mars. Ársverðbólgan fari ört lækkandi á komandi mánuðum en gangi spáin eftir verður verðbólgan komin í 3,6% í mars á næsta ári. Í Markaðspunktum greiningarinnar segir að þrátt fyrir að sú styrking á gengi krónunnar sem átti sér stað fyrr á árinu hafi ekki skilað sér nema að hluta í lægra innflutningsverðlagi þá virðist vera sem sú gengisleiðrétting sem kom í kjölfarið ætli að koma fram af fullum þunga. "Síðustu mælingar hafa a.m.k. borið með sér merki þess efnis að gengisáhrif veikingarinnar í haust hafi verið að skila sér út í verðlagið til hækkunar," segir í Markaðspunktunum. "Þrátt fyrir að krónan hafi haldist nokkuð stöðug frá því í lok október þá teljum við að enn eigi verðbólgutölur eftir að vera smitaðar af gengisáhrifum, þó svo að áhrifin fjari hægt og bítandi út eftir því sem krónan helst stöðugri yfir lengri tíma."
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira