Olíufélög mega ekki taka tillit til samkeppnisaðilanna BBI skrifar 16. ágúst 2012 10:49
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, vísar því alfarið á bug að Skeljungur sé of skuldsett félag til að standa í samkeppni á markaði. Í Viðskiptablaðinu í dag birtist viðtal við Hermann Guðmundsson, fráfarandi forstjóra N1. Þar segir hann m.a. að eldsneytisverð gæti verið lægra á Íslandi en ekkert félag hafi burði til að lækka verð nema N1 vegna skuldsetningar. Hann útskýrir auk þess að N1 hafi ekki lækkað verð sitt vegna þess að þeim hafi borið „skylda til þess að virða ákveðið ástand sem var á markaðnum, þ.e. að félögin voru misvel sett."Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs.Einar Örn forstjóri Skeljungs vísar ummælum Hermanns á bug. „Í fyrsta lagi er Skeljungur hreint ekkert skuldsett félag. Það er mjög hæfilega skuldsett," segir hann. Þá bendir hann á að forstjóri olíufélags eigi alls ekki að taka tillit til skuldsetningar samkeppnisaðila sinna. „Hann á bara að keyra sína samkeppni eins og hann getur og bjóða viðskiptavinum eins gott verð og hann telur sér fært." Hermann ályktar í Viðskiptablaðinu að N1 hefði getað lækkað verðið tímabundið og þannig kæft samkeppni á 4-6 mánuðum. Þá yrðu 1-2 félög eftir á markaði og Hermann efast um að það sé draumur neytenda. Einar Örn telur að í þessu felist ákveðin rökvilla hjá honum. Í svona verðstríði hefði samkeppnisaðilum tæplega fækkað. „Bankar hefðu tekið félögin yfir, lækkað skuldsetningu og selt nýjum aðilum - eins og gert var á sínum tíma með N1," segir hann en lánadrottnar N1 hafa þurft að afskrifa kröfur á félagið upp á tugi milljarða á síðustu misserum. „Menn hefðu ekki lagt starfsemina af vegna tímabundins verðstríðs," segir Einar.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira