Viðskipti innlent

Stjórn N1 segir að virk samkeppni sé á markaði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stjórn N1 segir að samkeppni félagsins við önnur olíufélög sé mjög virk og hafi meðal annars birst að undanförnu í háum tímabundnum afsláttum, aukinni þjónustu og afsláttum til neytenda í gegnum tryggðarkerfi.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér í dag, en Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri, sagði við fjölmiðla í dag að bensínverð á Íslandi gæti verið lægra, en olíufélögin geti hvorki né vilji lækka verðið vegna mikillar skuldsetningar og góðrar arðsemi sem hátt bensínverð skilar.

Stjórn N1 telur hins vegar mikilvægt að eðlileg samkeppni ríki á eldsneytismarkaði og telur að svo hafi verið. „Stjórnin, í samvinnu við nýráðinn forstjóra, stjórnendur og starfsfólk um land allt, mun tryggja að fyrirtækið láti ekki sitt eftir liggja í áframhaldandi samkeppni og verði í fararbroddi heilbrigðra viðskiptahátta," segir í tilkynningu frá stjórninni.


Tengdar fréttir

Ummæli Hermanns benda til samkeppnislagabrota

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðareigenda (FÍB), segir að ef ummæli Hermanns Guðmundssonar, fráfarandi forstjóra N1, séu sannleikanum samkvæm feli þau í sér brot á samkeppnislögum.

Samkeppniseftirlitið mun skoða ummæli Hermanns

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að ummæli Hermanns Guðmundssonar, fráfarandi forstjóra N1, um að N1 hafi ekki lækkað eldsneytisverð af virðingu við slæma stöðu samkeppnisaðila sinna séu allrar athygli verð. "Samkeppniseftirlitið mun gaumgæfa hvort í þeim felist vísbendingar um samkeppnislagabrot,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×