Höftin geta skapað bólur - eignaverð hækkar mikið hér Magnús Halldórsson skrifar 16. ágúst 2012 18:45
Gylfi Magnússson, dósent í viðskiptafræði, segir að mikilvægt sé að fylgjast grannt með gangi mála í íslensku efnahagslífi innan gjaldeyrishafta, því eignaverð geti hækkað mikið við þær aðstæður. Hann segir brýnt að horfa til þróunar eignaverðs þegar höftunum er aflétt. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að bankakerfið hrundi fyrir tæpum fjórum árum og gjaldeyrishöftum var komið á. Fjármagn safnast upp í hagkerfinu þar sem höftin hindra fjárfestingu erlendis. Hvort sem höftin eru áhrifavaldur eða ekki, þá er þróun á mörkuðum athygliverð. Þannig hefur ávöxtun á íslenskum hlutabréfamarkaði síðustu tvö ár, eftir algjört hrun árin 2007 og 2008, verið mjög góð í alþjóðlegum samanburði. Gengisvísitalan á íslenskum hlutabréfamarkaði hefur hækkað um 25 prósent síðustu tvö ár, á meðan meðaltalið á hinum Norðurlöndunum er 13 prósent. Víðast hvar í heiminum hefur ávöxtun hlutabréfa á sama tímabili verið neikvæð, enda óvissa í efnahagsmálum heimsins enn mikil. Þá er fasteignaverð aftur tekið að hækka, eftir mikla raunlækkun eftir hrun, og velta í viðskiptum hefur aukist mikið á þessu ári miðað við árið á undan. Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrrum viðskiptaráðherra, segir brýnt við þær aðstæður sem hér eru, að fylgjast grannt með gangi mála. „Ef eitthvað er þá leiða höftin til hærra fasteignaverðs og hlutabréfaverðs, einfaldlega vegna þess að það er ekki hægt að fjárfesta í útlöndum og þá leita krónurnar í annan farveg. Þetta er eitthvað sem þarf að hafa í huga þegar það er metið hversu hratt á að afnema höftin."
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Sjá meira