Forsendur kjarasamninga að bresta Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. október 2012 12:11 Greining Íslandsbanka segir að kaupmáttaraukning verði innan við 1%. Mynd/ Vilhelm.
Forsendur kjarasamninga eru að bresta. Þetta er fullyrt í Morgunkorni Íslandsbanka, sem kom út nú rétt fyrir hádegi. Þar segir að ef horft sé fram á veginn sé útlit fyrir sú verðbólga sem nú sé í kortunum verði búin að éta upp nánast alla þá 7% hækkun sem samið var um í síðustu kjarasamningum fyrir lok þessa árs. Ef sú verði raunin verði mikill þrýstingur á að auka við samningsbundna launahækkun þegar samningarnir verða opnaðir til endurskoðunar í janúar á næsta ári. Núverandi samningar hljóða upp á 3,25% hækkun launa á fyrsta fjórðungi næsta árs, en sett eru skilyrði um að verðbólga verði við 2,5% markmið Seðlabankans, gengisvísitala krónu verði 190 stig og að kaupmáttur hafi aukist yfir þetta ár. Greining Íslandsbanka segir hverfandi líkur á að fyrri tvö skilyrðin verði uppfylgt. Útlit sé fyrir að kaupmáttaraukning yfir árið verði innan við 1% þegar staðan verður tekin í desember, verðbólga verði þá 4,4% og þá sé nánast óhugsandi að krónan verði á þeim slóðum sem gert er ráð fyrir í forsendum kjarasamninga en til þess að það myndi nást þyrfti gengi krónunnar að styrkjast um 15% gagnvart helstu gjaldmiðlum.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira