Völdum fjárfestum fyrst boðið að kaupa bréf í Eimskipafélaginu Magnús Hallórsson skrifar 22. október 2012 23:21
Frá 23. október til 25. október verður takmörkuðum fjölda fjárfesta, völdum af Eimskipafélaginu og þeim sem umsjón hafa með skráningarferli Eimskipafélagsins á markað, þ.e. Straumi fjárfestingabanka og Íslandsbanka, boðið að skrá sig fyrir hlutum í félaginu á bilinu 205 til 225 krónur á hlut. Samkvæmt því verðmati er heilarvirði félagsins á bilinu 41 til 45 milljarðar króna. Almenningi verður boðið að skrá sig fyrir hlutum í Eimskipafélaginu frá og með 30. október til 2. nóvember, í opnu útboðsferli, en gengi bréfa í því útboði ræðst af eftirspurn eftir bréfunum. Til stendur að selja 50 milljónir hluta í félaginu til nýrra eigenda í gegnum skráðan hlutabréfamarkað, en það samsvarar fjórðungi hlutfjár félagsins. Fyrsti viðskiptadagur með bréf félagsins í Kauphöll verður ekki fyrr en í fyrsta lagi 16. nóvember, að því er segir í skráningarlýsingu fyrir félagið sem birt hefur verið á vef OMX Nasdaq kauphallar Íslands. Stærsti einstaki eigandi Eimskipafélagsins er þrotabú Landsbanka Íslands hf. með ríflega 30 prósent hlut. Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa American Alliance Fund II á ríflega 15 prósent hlut og Lífeyrissjóður verzlunarmanna á 14,6 prósent hlut. Yucaipa á í gegnum annan sjóð 10 prósent hlut í félaginu til viðbótar, og því er sameiginleg hlutafjáreign í nafni Yucaipa um 25 prósent af heildarhlutafé. Sjá má skráningarlýsinguna, sem birt hefur verið á vef kauphallarinnar, hér.
Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira