Á undanþágu í bruggnámi BBI skrifar 20. september 2012 10:45 Uppskriftin af Október Kalda er þróuð af 21 árs gömlum strák. Þröstur Ernir/Vikudagur
Nýi bjórinn frá Kalda kemur í verslanir næstkomandi mánudag. Bjórinn nefnist Október Kaldi og er bruggaður eftir nýrri uppskrift sem 21 árs gamall sonur brugghússeigendanna þróaði. Sigurður Bragi Ólafsson verður líklega seint talinn til reynslubolta í bruggheiminum en hann er enn svo ungur að hann þurfti sérstaka undanþágu til að komast í bruggnám til Bandaríkjanna sem hann leggur nú stund á. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigurður engu að síður verið viðloðandi bruggiðnina lengi, en foreldrar hans stofnuðu bruggverksmiðjuna Kalda árið 2005. Síðustu þrjú ár hefur hann verið fastur starfsmaður brugghússins. Október Kaldi er fyrsta bjóruppskriftin sem að hann þróar sjálfur. Sigurður virðist eiga framtíðina fyrir sér í bruggun því skemmst er frá því að segja að uppskriftin hlaut fyrstu verðlaun á hinni árlegu bjórkeppni að Hólum í Hjaltadal í byrjun mánaðarins og verður nú grundvöllurinn að nýjasta bjórnum frá Kalda og mun eflaust rata á eldhúsborð margra. Heilsíðuviðtal var við Sigurð í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir hann m.a. frá starfseminni hjá Kalda og bjórnáminu sem hann leggur nú stund á. Námið er bæði bóklegt og verklegt og hefur Sigurður að mestu leyti lokið við bóklega námið. Verklega námið er hins vegar allt eftir og Sigurður mun seinka því um sinn þar sem hann á von á sínu fyrsta barni í janúar. Eftir námið verður Sigurður kominn með diplómu í bruggi og mun snúa sér að bjórgerð hjá verksmiðju foreldra sinna. Þar mun hann vinna í samstarfi við reynda bruggara. „Ég verð alls ekkert aðalbruggari Kalda. Við munum bara hjálpast öll að," segir hann. Eins og stendur er unnið að gerð jólabjórsins hjá Kalda. Þar er ekki unnið eftir uppskrift frá Sigurði en hann leggur sitt að mörkum til að allt gangi upp og bjórinn bragðist sem best.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira