Vilja fá samtal Davíðs og Geirs 26. apríl 2012 10:30 björn valur gíslason
Fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hafa óskað eftir afriti af símtali Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands, og Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, frá október 2008. Umræðuefnið var fyrirhugað lán Seðlabankans til Kaupþings. Seðlabanki Íslands lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra 6. október 2008, tveimur dögum fyrir hrun bankans. Í vitnaleiðslum vegna Landsdóms kom fram að upptaka af samtali Davíðs og Geirs um lánið væri til og nú hafa þingnefndirnar tvær óskað eftir afriti af því. Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar, segir að ekki hafi borist svar við málaleitan þingnefndanna. Hann á þó ekki von á öðru en þingnefndirnar fái afrit af símtalinu. „Það eru fordæmi fyrir því. Í fyrra fengum við afrit af samtali Seðlabankastjóra Íslands og Bretlands til aflestrar, vegna yfirlýsingar fyrrverandi seðlabankastjóra um Icesave og fleira. Ég á ekki von á öðru en þeir veiti okkur aðgang að þessu." Björn Valur segir mikilvægt að fá upplýsingar um hvernig staðið var að lánveitingunni. Um gríðarlegar upphæðir hafi verið að ræða með nánast engum veðum. „Þetta eru slíkar upphæðir að rétt er að fá úr því skorið hvernig þetta var framkvæmt. Hvort ákvörðunin var tekin í samráði eða með leyfi þáverandi forsætisráðherra."- kóp
Fréttir Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira