Launin verði að vera í samræmi við veruleika Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. október 2012 15:05 Helgi Magnússon er formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ætlar að beita áhrifum sínum innan stjórnar Eimskips til að hófs verði gætt varðandi kjör stjórnenda félagsins. Þetta segir í yfirlýsingu frá stjórninni vegna hlutafjárútboðs sem lauk í dag. Í yfirlýsingunni segir að í vor hafi lífeyrissjóðurinn tekið ákvörðun um að kaupa 14% hlut í Eimskipafélagi Íslands. Sú ákvörðun hafi tengst fyrirhuguðu hlutafjárútboði til fagfjárfesta og einstaklinga sem stendur nú yfir. Áður átti sjóðurinn óverulegan hlut í Eimskip, um hálft prósent hlutafjár. Forsvarsmenn Lífeyrissjóðs verslunarmanna segja að sjóðurinn hafi ekki átt aðkomu að þeim ákvörðunum, sem teknar voru á árunum 2010 og 2011, um að veita stjórnendum fyrirtækisins þá kauprétti sem upplýst hefur verið um, enda hafi sjóðurinn þá ekki átt aðild að stjórn fyrirtækisins. „Ákvörðun sjóðsins um kaup á 14% hlut í Eimskip var tekin að vandlega athuguðu máli þar sem kaupin voru talin tryggja vel hag sjóðfélaga til framtíðar enda er það mat sjóðsins að rekstrarhorfur félagsins séu góðar. Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur nú afl hlutafjáreignar til að hafa áhrif á skipan stjórnar Eimskips. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að beita áhrifum sínum til að hófs verði gætt varðandi kjör stjórnenda félagsins þannig að þau verði í góðu samræmi við íslenskan veruleika," segir í tilkynningu frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira