OR mun tapa á Gagnaveitu 20. október 2012 00:01 Mynd/Stefán Karlsson
Orkuveita Reykjavíkur (OR) fjárfesti fyrir 11,8 milljarða króna í Gagnaveitu Reykjavíkur fram til ársloka 2011. Þá hafði heildartap fyrirtækisins numið 3,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í nýbirtri úttektarskýrslu um OR og ársreikningum fyrirtækjanna. Stjórn OR samþykkti í gær að selja minnihluta, 49 prósent, í Gagnaveitunni. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR og stjórnarmaður í Gagnaveitunni, vill ekki gefa upp hvaða hugmyndir stjórnin hefur um virði hlutarins. "Það á eftir að skoða fyrirtækið, gera einhvers konar sölulýsingu og verðmeta það," segir Bjarni. Dagur B. Eggertsson, formaður eigendanefndar OR, telur langtímafjárfesta á borð við lífeyrissjóði vafalítið munu hafa áhuga á fyrirtækinu. Gagnaveitan tapaði 380 milljónum króna á síðasta ári, aðallega vegna gengismunar, enda eru tæpir sjö milljarðar króna af skuldum hennar í erlendri mynt. Tekjurnar eru hins vegar í íslenskum krónum. Glitnir mat Gagnaveituna á sjö milljarða króna árið 2007. Séu sömu reiknireglur og Glitnir beitti þá notaðar nú er virði hennar í dag fimm milljarðar króna. Þá er virði tæps helmingshlutar um 2,4 milljarðar króna. Virði Gagnaveitunnar var hins vegar bókfært á 4,7 milljarða í hálfsársuppgjöri OR. Í "Planinu", aðgerðaráætlun OR, er áætlað að eignasala skili 5,1 milljarði króna á árinu 2013, þar á meðal hluturinn í Gagnaveitunni. Sú sala á þó einungis að skila hluta heildarupphæðarinnar.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira