Segir niðurstöður Deloitte hæpnar og sumt beinlínis rangt Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. apríl 2012 11:51 Skrifstofur Deloitte í Smáraturninum í Kópavogi.
Niðurstöður endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte um áhrif hækkunar veiðigjalds í nýju frumvarpi eru hæpnar að mati sjávarútvegsráðuneytisins. Þá sé það beinlínis rangt að ekki sé gert ráð fyrir afskriftum og nýfjárfestingum í útreikningi á veiðigjaldi. Ráðuneytið telur jafnframt að umfjöllun Íslandsbanka um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða sé ruglingsleg og að hluta byggð á misskilningi.Spurning um forsendur Samkvæmt niðurstöðum Deloitte, sem kynntar voru í vikunni, myndi ríkissjóður taka til sín allan hagnað sjávarútvegsfyrirtækjanna og gott betur, yrði nýtt frumvarp til veiðigjalds að lögum.Samkvæmt útreikningum Deloitte hefði þessi skattlagning þýtt að ríkissjóður hefði tekið til sín 105 prósent af hagnaði sjávarútvegsfyrirtækjanna á árunum 2001-2010. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vísar þessu á bug í yfirlýsingu sem það sendi frá sér í morgun. Þar segir að Deloitte virðist ganga út frá þeirri meginforsendu að útgerðaraðilar eigi kvótann og eigi þar af leiðandi líka allan hagnað af nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar án tillit til þess hve mikið þeir hafa lagt fram. Taka veiðigjalds sé því skattlagning hagnaðar en ekki greiðsla fyrir afnot af auðlindinni. Með því reikni fyrirtækið sig upp í himinhá skatthlutföll. Hið eðlilega væri að líta á veiðigjöldin sem endurgreiðslu á kostnaði og leigu fyrir heimild til nýtingar á eign sem ekki tilheyrir útgerðinni.Meta ekki áhrif veðigjalds til lækkunar á tekjuskatti Í yfirlýsingu ráðuneytisins segir að í því sem Deloitte hafi látið frá sér kemur lítið fram á hverju niðurstöður þeirra séu byggðar. Ljóst sé þó að ýmsar forsendur séu hæpnar. Deloitte til dæmis meti ekki áhrif veiðigjalda á tekjuskattsgreiðslur, þ.e væntanlega lækkun þeirra, en hún eigi til lengri tíma að vera 20% af veiðigjaldinu. Þá telur ráðuneytið að misræmi sé í útreikningi Deloitte á skuldum útvegsfyrirtækja. Deloitte flokki allar skuldir, hvernig sem þær séu til komnar, og reikni af þeim vexti. Tekjurnar sem notaðar séu í samanburðinum séu hins vegar eingöngu af fiskveiðum og fiskvinnslu. Misræmi sé í þessu efni. Þá sé það beinlínis rangt að ekki sé gert ráð fyrir afskriftum og nýfjárfestingum útgerðarfyrirtækja í útreikningi á veiðigjaldi. Þetta komi skýrlega fram í fylgiskjali með frumvarpinu. Í tilkynningu segir ráðuneytið jafnframt að umfjöllun Íslandsbanka um flokk 2 í nýju frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða sé ruglingsleg og sumpart byggð á misskilningi.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Sjá meira