Slitastjórnir tóku út 262 milljarða í gjaldeyri úr Seðlabankanum 8. október 2012 06:37
Slitastjórnir gömlu bankanna þriggja tóku út samtals tæplega 262 milljarða króna af gjaldeyrisreikningum sínum í Seðlabankanum í síðasta mánuði. Við þetta minnkað heildargjaldeyrisforði bankans niður í tæplega 533 milljarða króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að þessi úttekt hafi ekki haft áhrif á hreinan eða nettó gjaldeyrisforða bankans. Einnig segir að samkvæmt lögum geti fjármálafyrirtæki í slitameðferð tekið út innistæður sínar hvenær sem er en þessar innistæður teljast til gjaldeyrisforðans meðan þær eru inni á reikningum í Seðlabankanum og eru þar flokkaðar sem erlendar skammtímaskuldir. Á vefsíðu bankans segir að frá því í október 2008 hafa fjármálafyrirtæki í slitameðferð lagt inn erlendan gjaldeyri á reikninga í Seðlabanka Íslands vegna endurheimta fjármuna. Hefur sá erlendi gjaldeyrir aukið vergan gjaldeyrisforða. Innstæðurnar hafa verið flokkaðar sem erlend skammtímaskuld og því ekki haft áhrif á hreinan gjaldeyrisforða. Erlendur gjaldeyrir sem lagður hefur verið inn á reikning í Seðlabankanum með þessum hætti hefur síðan verið ávaxtaður hjá öruggustu stofnunum sem völ er á, þ.e. Alþjóðagreiðslubankanum í Basel og hjá öðrum seðlabönkum. Fjármálafyrirtæki í slitameðferð geta tekið út gjaldeyrisinnstæður sínar í samræmi við ákvæði laga, hvenær sem er. Áhrif úttektanna eru þau að vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkar sem þeim úttektum nemur en hreinn gjaldeyrisforði (forði umfram skammtímaskuldir) Seðlabanka Íslands verður óbreyttur.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira