Viðskipti innlent

Fara fram á frest á greiðslu sérstaks veiðigjalds

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur farið þess á leit við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að frestur verði veittur á fyrstu greiðslu sérstaks veiðigjalds. Eins og Vísir greindi frá fyrir helgi hefur útgerðum borist álagning veiðigjalda samkvæmt lögum sem samþykkt voru í lok síðasta þings um veiðigjöld. Greiðsluseðillinn er sendur út vegna þess aflamarks sem þegar hefur verið úthlutað fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 og krafa gerð um greiðslu ¼ hluta álagningarinnar.

Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í nýju lögunum um veiðigjöld eiga útgerðir rétt á lækkun á sérstöku veiðigjaldi vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum ef skilyrðum ákvæðisins er fullnægt.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastóri LÍÚ, bendir á að í kröfu ríkisins á hendur útgerðum um greiðslu á ¼ hluta veiðigjaldsins hafi ekki verið tekið tillit til réttar þeirra sem eiga rétt á lækkun sérstaka veiðigjaldsins vegna ákvæðis til bráðabirgða II í lögum um veiðigjöld.

Vegna þessa hafi LÍÚ farið þess á leit við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að frestur verið veittur á greiðslu gjaldsins þar til metið hefur verið og tekið tillit til lækkunar sérstaka veiðigjaldsins.

„Við teljum að ríkið geti ekki innheimt skatt hjá aðilum sem samkvæmt lögum eiga rétt á lækkun eða niðurfellingu hans. Við treystum því að ráðuneytið verði við þessari ósk okkar," segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×