Gylfi: Nauðsynlegt að fylgjast grannt með alþjóðamörkuðum Magnús Halldórsson skrifar 13. nóvember 2012 12:14 Gylfi Magnússon.
Það þarf að fylgjast grannt með því hvernig erfiðleikar á alþjóðamörkuðum hafa áhrif á íslenskt efnhagslíf, segir Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og fyrrverandi ráðherra viðskipta- og efnahagsmála. Erfiðleikar á alþjóðamörkuðum eru þegar farnir að hafa áhrif á íslenskan efnahag, en eins og fréttastofa greindi frá í síðustu viku hafa íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fundið fyrir erfiðleikum við að selja fisk víða, ekki síst í Suður-Evrópu, en það svæði, og þá ekki síst markaðir í Portúgal og á Spáni, hefur lengi verið mikilvægt markaðssvæði fyrir íslenskar sjávarafurðir. Atvinnuleysi í Evrópu er nú að meðaltali ríflega 11 prósent, samkvæmt tölum Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins. Mest er það á Spáni, eða um 25 prósent. Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi viðskipta- og efnahagsráðherra, segir að fylgjast þurfi grannt með því hvernig mál þróast erlendis, þar sem það hafi bein áhrif á íslenska hagkerfið, þá helst útflutningsfyrirtæki. Miklu skiptir að fyrirtæki og hið opinbera haldi vel á spöðunum með það að markmiði að gera sem best úr erfiðri stöðu. „Það skiptir miklu máli fyrir íslenskt efnahagslíf hvernig staða efnahagsmála er á alþjóðamörkuðum, og þá ekki síst í Evrópu, sem er okkar stærsta viðskiptasvæði og þaðan koma einnig flestir ferðamenn. Það er því nauðsynlegt að fylgjast vel með þróun mála, ekki síst til þess að sjá hvenær og hvernig áhrifin af erfiðleikum erlendis koma fram hér," segir Gylfi.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira