Spá því að verðbólgan lækki í 4,9% í júní 21. júní 2012 10:57
Greining Arion banka spáir 0,1% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í júní. Ef spáin gengur eftir mun ársverðbólgan halda áfram að lækka og verða 4,9% í júní, samanborið við 5,4% í maí. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að bráðabirgðaspá til næstu mánaða lækkar en óvenju mikil óvissa er í spánni þar sem örar breytingar hafa verið bæði á gengi krónunnar og á erlendum hrávörum. Gangi bráðabirgðaspáin eftir mun ársverðbólgan fara niður í 4,2% strax í júlí. Krónan hefur frá því í apríl styrkst um tæp 5% á sama tíma og hrávöruverð hefur farið lækkandi á heimsmarkaði. Slík þróun hlýtur að draga verulega úr hækkunarþörf kaupmanna og birgja, þrátt fyrir að mánuðina þar á undan hafi verið umtalsverð veiking á gengi krónunnar. Ræður þar mestu að bæði hefur krónan komið nokkuð hratt til baka og ekki síður standa væntingar til að krónan haldist fremur stöðug eða styrkist á næstu mánuðum. „Miðað við þróun hrávöruverðs úti í heimi sem og ef litið er til raunálagningar olíufélaganna (metið út frá þróun heimsmarkaðsverðs og gengi dollars) þá bendir allt til þess að frekari verðlækkanir séu framundan á eldsneytisverði hér heima. Ef við gefum okkur að raunálagning muni færast í átt að sögulegu meðaltali ætti að vera nú þegar svigrúm fyrir 7-8 kr. lækkun á hvern bensínlítra, en slíkt myndi skila um 0,2% lækkun í VNV t.d. í júlí verðmælingu Hagstofunnar," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira