Fitch hækkar lánshæfismatseinkunn Íslands 17. febrúar 2012 16:17
Matsfyrirtækið Fitch hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt var einnig hækkuð í F3 úr B og einkunnin fyrir lánshæfisþak Íslands í BBB- úr BB+. Lánshæfiseinkunnin BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt var staðfest með stöðugum horfum. Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands. „Hækkunin á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í fjárfestingarflokk endurspeglar þann árangur sem náðst hefur frá bankahruninu við að endurheimta stöðugleika í hagkerfinu, framfylgja kerfisumbótum og endurbyggja lánstraust ríkissjóðs. Ísland hefur lokið vel heppnuðu samstarfi við AGS og endurheimt aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Vænlegur efnahagsbati er hafinn og endurskipulagning fjármálageirans er vel á veg komin. Auk þess bendir traust áætlun um styrkingu ríkisfjármála til þess að hlutfall ríkisskulda af landsframleiðslu hafi náð hámarki árið 2011" segir Paul Rawkins, framkvæmdastjóri hjá Fitch, í yfirlýsingu sem birtist á vef matsfyrirtækisins. Fitch segir líka að áhrif Icesave á lánstraust hins opinbera hafi farið minnkandi og Landsbankinn hafi hafið endurgreiðslu á innstæðukröfum. Þrátt fyrir það telji Fitch að Icesave geti enn valdið hækkun á skuldum hins opinbera um 6-13% af vergri landsframleiðslu ef úrskurður EFTA dómstólsins verði Íslandi í óhag. Lausn á Icesave deilunni sé mikilvægt skref í þá átt að koma aftur á eðlilegum samskiptum við erlenda lánardrottna og fjarlægja þennan óvissuþátt úr fjármálum hins opinbera.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira