Gunnar undirbýr svar með Skúla Bjarnasyni lögmanni Magnús Halldórsson skrifar 17. febrúar 2012 00:01 Gunnar Andersen.
Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), hefur andmælarétt til lok dags á mánudaginn, vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar FME um að segja honum upp störfum. Samkvæmt heimildum fréttastofu tilkynnti Aðalsteinn Leifsson, formaður stjórnar FME, Gunnari fyrir hönd stjórnarinnar um þá ákvörðun að segja honum upp störfum, og bauð honum að gera það í sátt við hann. Það var Gunnar ekki tilbúinn til þess að gera, og í kjölfar formlegrar beiðni lögmanns Gunnars, Skúla Bjarnasonar hrl., um frekari rökstuðning fyrir ákvörðuninni, varð úr að Gunnar fengi frest til lok dags á mánudag, til þess að andmæla ákvörðuninni með lagalegum rökum. Fréttastofa náði tali af Gunnari fyrir skömmu, en hann var ekki tilbúinn að ræða um uppsögnina, eða annað er þessu máli tengist, að svo stöddu. Eins og greint var frá á Vísi fyrr í kvöld var ákvörðun stjórnar FME tekin eftir að Ástráður Haraldsson hrl. og Ásbjörn Björnsson endurskoðandi höfðu skilað skýrslu til stjórnar FME um aðkomu Gunnars að aflandsfélögum, þegar hann starfaði hjá Landsbankanum, og hæfi hans til þess að gegna starfi forstjóra. Andri Árnason hrl. hafði í tvígang verið fenginn til þess að meta hæfi Gunnars, eftir að upplýsingar komu fram, m.a. í Kastljósi RÚV, þess efnis að hann hefði komið að starfsemi aflandsfélaga Landsbankans á þeim tíma er hann starfaði þar, sem var á árunum 1991 til 2003. Ástráður og Ásbjörn voru síðan fengnir til þess að fara yfir síðara mat Andra, og draga fram nýjar upplýsingar eftir því sem þörf var á. Gunnar var ráðinn forstjóri FME 3. apríl 2009 og var þá valinn úr hópi 19 umsækjenda. Frekari upplýsingar um málið koma hér inn á Vísi eftir því sem upplýsingar um málið berast.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira