Viðskipti innlent

Verðbólgan minnkar niður í 4,2%

Ársverðbólgan mældist 4,2% í desember og minnkar því um 0,3%. Þetta er þvert á spár sérfræðinga sem gerðu ráð fyrir óbreyttri verðbólgu frá fyrri mánuði eða að hún myndi aukast lítilsháttar.

Á vefsíðu Hagstofunnar segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2012 er 402,2 stig og hækkaði um 0,05% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,3 stig og lækkaði um 0,05% frá nóvember.

Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 1,9% (vísitöluáhrif -0,11%) en kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,5% (0,07%). Þar af voru 0,11% áhrif af hækkun markaðsverðs en -0,04% áhrif af lækkun vaxta.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,6% verðbólgu á ári (3,2% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×