Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa minnkaði í nóvember

Vísitala kaupmáttar launa í nóvember er 111,7 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 0,4%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitala í nóvember 2012 er 437,7 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,0%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×