Viðskipti innlent

Hagnaður kvikmyndafyrirtækisins Truenorth 44 milljónir króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tom Cruise er væntanlega stærsta Hollywood stjarnan sem kom til Íslands. Truenorth þjónustaði teymið sem kom að gerð Oblivion.
Tom Cruise er væntanlega stærsta Hollywood stjarnan sem kom til Íslands. Truenorth þjónustaði teymið sem kom að gerð Oblivion.
Hagnaður kvikmyndafyrirtækisins Truenorth nam 44,2 millljónum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins sem skilað var til ársreikningaskrár rétt fyrir síðustu mánaðamót. Fyrirtækið sérhæfir sig í kvikmyndaframleiðslu og hefur meðal annars þjónustað alla helstu Hollywoodframleiðendur sem hafa komið hingað til lands að undanförnu.

Þær myndir sem fyrirtækið vann helst að í ár eru Oblivion, sem skartar Tom Cruise í aðalhlutverki, Noah, sem Russel Crowe leikur í, Secret Life of Walter Mitty, sem er mynd Bens Stiller og framhaldið af Thor, sem Chris Hemsworth leikur í.

Helstu eigendur Truenorth eru Novator ehf, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem á 30% hlut, Leifur Björn Dagfinnsson, sem á 21%, Sögn ehf., félag í eigu Baltasars Kormáks Baltasarssonar, sem á 18% og Truenorth Ísland ehf, sem á 11%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×