Segir tryggingagjaldið ekki lækka nóg Höskuldur Kári Schram skrifar 27. desember 2012 20:00
Samtök atvinnulífsins gagnrýna þá ákvörðun fjármálaráðherra að lækka tryggingagjaldið um einungis 0,1%. Þetta sé ekki í takt við minnkandi atvinnuleysi og muni neyða atvinnurekendur til að velta launahækkunum næsta árs út í verðlagið. Atvinnurekendur gerðu ráð fyrir því að tryggingagjaldið myndi lækka um 0.75% um áramótin eða um sex milljarða króna. Lækkuninni var ætlað að standa undir hluta af umsömdum launahækkunum þann fyrsta febrúar á næsta ári. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að þessi lækkun sé ekki í takt við tölur um minnkandi atvinnuleysi. „Þetta þýðir að verðbólgan getur áfram verið á því róli sem að hún hefur verið. Hættan sé sú að við séum að festast í þetta 4 til 5 prósent verðbólgu. Það má lítið útaf bera til að það verði ekki ennþá hærra, 8 til 10%," segir hann. Svigrúm fyrirtækja til að mæta hækkun launa sé því ekki eins mikið og því viðbúið að þau velti þeirri hækkun út í verðlagið. Það auki verðbólgu sem síðan kallar frekari hækkun launa. Eru íslendingar komnir í þennan sama gamla vítahring launahækkana og verðbólgu? „Því miður er stór hætta á því," svarar Vilhjálmur. Laun á íslandi hafa hækkað þrefalt meira en á Norðurlöndum síðustu ár samkvæmt skýrslu OECD. Vilhjálmur segir hins vegar að þessar hækkanir hafi ekki skilað sér í auknum kaupmætti launþega. „Þær sýna okkur að verðbólgan er meiri hér á landi en í okkar nágrannalöndum sem er bagalegt. Þessar launahækkanir sem við erum með langt umfram aðra eru ekki að nýtast í kaupmátt," segir Vilhjálmur.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira