Viðskipti innlent

Ennþá mikil sala á fasteignum í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu um fasteignir í síðustu viku var 125. Þetta er svipaður fjöldi og nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði.

Af þessum fjölda voru 94 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var tæplega 3,8 milljarðar króna og meðalupphæð á samning rúmlega 30 milljónir króna. Bæði veltan og upphæðin eru á svipuðu róli og nemur meðaltali á viku undanfarna þrjá mánuði að því er segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×