Þurfum minnst 1400 nýjar íbúðir á ári 4. desember 2012 09:29 Hafsteinn Hauksson.
Greiningardeild Arion banka spáir verðhækkun á íbúðum á næstu árum. Helstu ástæðurnar eru aukin umsvif í hagkerfinu samhliða vaxandi kaupmætti. Þá eru vaxtakjör hagstæð um þessar mundir sem eru ein afleiðing haftaumhverfis. Byggingarkostnaður er hár sem dregur úr hvata til nýbygginga. Ef verð hækkar ekki umfram byggingarkostnað er útlit fyrir að skortur verði á nýjum eignum. Þörf er á 1400 til 1700 íbúðum á markaði næstu árum, en eftir bankahrun hefur meðaltal byggðra íbúða verið undir 200. „Ítalir eru heima hjá mömmu langt fram á fertugsaldur. Ef íslendingar ætla ekki að enda eins og þeir þarf þennan fjölda íbúða,‟ sagði Hafsteinn Gunnar Hauksson, sérfræðingur hjá greiningadeild Arion banka, á fyrirlestri hjá bankanum í dag. Greining Arion banka telur sennilegra að minni eignir, einkum og sér í lagi í fjölbýli, hækki meira í verði en raðhús, parhús og einbýlishús. Nú þegar séu vísbendingar um að sérbýlisálagið hafi lækkað á markaði en greiningadeildin telur að sú þróun gæti haldið áfram. Það helgast einkum af því að framboð minni íbúða í fjölbýli á markaði sé takmarkað vegna neikvæðrar eiginfjárstöðu ungra fasteignaeigenda og því muni nýir kaupendur á markaði þrýsta verði þeirra upp þar til eigendur slíkra eigna losna úr eiginfjárgildrunni. Í öðru lagi telur greiningadeildin að hverfisálag miðsvæðis muni hækka en það lækkaði á flesta mælikvarða í hruninu. Þegar fasteignaverðshækkanir hafa komið fram hafa þær að öðru jöfnu verið kraftmeiri miðsvæðis en auknum kaupmætti vill fylgja aukinn vilji til að greiða hátt verð fyrir staðsetningu. Þá hefur stækkun byggðar og fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu tilhneigingu til að setja þrýsting á íbúðir í bestu hverfunum, þar sem þeim fjölgar lítið sem ekkert yfir tíma.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira