Viðskipti innlent

Veltan jókst um 19% á fasteignamarkaðinum

Veltan á fasteignamarkaðinum í nóvember var rúmlega 19% meiri en í mánuðinum á undan. Kaupsamningum fjölgaði hinsvegar aðeins um 2%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember s.l. var 563. Heildarvelta nam 19,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 34,7 milljónir króna.

Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 11,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 4,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,5 milljörðum króna.

Þegar nóvember er borinn saman við október fjölgar kaupsamningum um 2% og velta eykst um 19,3%. Í október 2012 var þinglýst 552 kaupsamningum, velta nam 16,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 29,7 milljónir króna.

Þegar nóvember 2012 er borinn saman við nóvember í fyrra fjölgar kaupsamningum um 18,5% og velta eykst um 33,6%. Í nóvember í fyrra var þinglýst 475 kaupsamningum, velta nam 14,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 30,8 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×