Viðskipti innlent

Icelandair með 25% fleiri farþega í millilandaflugi

Icelandair flutti 131 þúsund farþega í millilandaflugi í nóvember og voru þeir 25% fleiri en í nóvember á síðasta ári.

Framboðsaukning var 31% á milli ára. Sætanýting nam 75,9% samanborið við 76,9% í nóvember í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru tæplega 26 þúsund í nóvember sem er lækkun um 4% á milli ára. Sætanýting nam 72,4% og jókst um 5,6 prósentustig á milli ára.

Fraktflutningar jukust um 6% á milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×