Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóðanna orðnar 2.326 milljarðar

Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.326 milljörðum kr. í lok október og hafði þar með hækkað um 31 milljarð kr. frá september eða 1,4%.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða nam 1.665 milljörðum kr. í lok október og hækkaði um tæpa 15 milljarða kr. á milli mánaða.

Erlend verðbréfaeign stóð í 528 milljörðum kr. í lok október og hafði hækkað um 11,5 milljarða kr. frá fyrri mánuði en þar af hækkuðu erlend hlutabréf og hlutabréfasjóðir um tæpa 9 milljarða kr. á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×