Viðskipti innlent

Þjónustujöfnuðurinn jákvæður um tæpa 35 milljarða

Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi ársins var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 124,1 milljarður kr. en innflutningur á þjónustu 89,3 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 34,8 milljarða króna en var jákvæður um 28,7 milljarða kr. á þriðja ársfjórðungi í fyrra á gengi hvors árs.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 27,6 milljarðar kr. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 12,9 milljörðum kr. Afgangur á ferðaþjónustu var 20,1 milljarður kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×